top of page

LINER COLOR GEL

  • Writer: Aníta Arndal
    Aníta Arndal
  • Apr 4, 2019
  • 2 min read

Liner color gelin okkar eru rosalega falleg og mjög auðveld í notkun. Þau eru mjög stöðug svo það er mjög auðvelt að stýra þeim og vinna þau. Þessi gel eru mjög pigmentuð og því þarf mjög lítið magn í einu. Það er hægt að nota Liner gelin okkar á marga mismunandi vegu.


Hér er gelpolish Blackest Black og svo hvítt og svart Liner color gel í skreytingar. Þetta eru mjög þunnar línur en samt "mikill" litur vegna hversu pigmentað það er. Ef það er notað of þykkt magn er hætta á að það harðni ekki í gegn.

Við eigum Liner color gelin í tvennskonar litum, hvítt og svart. Ein krukka dugir mjög lengi ef þú notar rétt magn í hvert skipti.


Liner Color Gel Black


Liner Color Gel White

Það er rosalega skemmtilegt að vinna með þessi gel. Hægt er að heillita neglur með því, gera fallegt french, babyboomer, skraut eða hvað sem manni dettur í hug.

Við erum einnig með Liner gel sem heita FAST Liner Gel og koma þau í svörtu og hvítu.


Fast Liner Gel Black


Fast Liner Gel White

Þessi gel eru mjög skemmtileg. Þið sem þekkið þau ekki, þá köllum við þessi gel "Spider" gelin. Það er hægt að gera margt fallegt og skemmtilegt með þessum gelum. Þau eru frekar þunn en samt teygjast vel og það "slitnar" ekki auðveldlega í notkun.


Hér fyrir ofan getur þú séð hvernig Fast Liner gelin eru notuð


Hér fyrir ofan er myndband sem Nadja bjó til og notar bæði Liner gelin og Fast Liner gelin.


TRIX*

Mjög gott að nota Liner Color Gelin í stimplana.

Aðferð:

-Veldu þér eitthvað fallegt munstur sem þig langar að fá á neglurnar

-Settu Liner Color gel (svart eða hvítt) í munstrið sem þú valdir

-Skafðu það með sköfunni sem fylgir stimplinum

-Veiddu munstrið af plötunni yfir á stimpilinn

-Settu stimpilinn (með munstrinu á) inn í ljós í 5 sek ca

-Stimplaðu svo á nöglina


Endilega prufið ykkur áfram með þessi gel og ykkur er velkomið að spyrja mig ef þið eruð með einhverjar spurningar.

YKKAR,



 
 
 

Comments


byarndal@gmail.com
Förðunarfræðingur - MUA
Digital Marketing
Sölu-, rekstrar- & markaðsfræði

Beauty by Arndal
 

© Allur réttur áskilinn.

- Öll notkun & afritun á efni er óheimil án samþykkis

bottom of page